Óbirtur þáttur veldur taugatitringi í stjórnarliði

Stefán Einar Stefánsson tók viðtal við Hönnu Katrínu Friðriksson í …
Stefán Einar Stefánsson tók viðtal við Hönnu Katrínu Friðriksson í gær og það verður birt í dag. Sigurjón Þórðarson hefur nú þegar brugðist við innihaldi þáttarins án þess að hafa séð hann. mbl.is/samsett mynd

Þingmaður Flokks fólksins hefur brugðist harkalega við viðtali í Spursmálum sem enn hefur ekki verið birt opinberlega, og hann hefur sjálfur ekki hlýtt á. Segir hann viðtalið hafa verið fyrirsát.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Sigurjóns Þórðarsonar, oddvita Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi, sem hann birti í gærkvöldi.

Þátturinn birtur á mbl.is í dag

Vísar hann þar til viðtals Stefáns Einars Stefánssonar við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra en það verður birt í Spursmálum á mbl.is kl. 14.00 í dag.

Viðtalið var tekið upp síðdegis í gær í ljósi þess að ríkisstjórnarfundir eru haldnir fyrir hádegi á föstudögum og ráðherrum oft og tíðum óhægt um vik að mæta samdægurs til leiks í þáttinn.

Í viðtalinu er meðal annars rætt um þá ákvörðun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að gera stórauknar strandveiðar að forgangsmáli sínu.

Inn í þá umræðu tvinnaðist sú staðreynd að Sigurjón Þórðarson á fyrirtæki sem stundað hefur strandveiðar og mun að öllu óbreyttu njóta mikils ábata af þeim breytingum sem ríkisstjórnin áformar. 

Að frumkvæði Flokks fólksins

Voru breytingarnar settar í stjórnarsáttmála valkyrjanna fyrir atbeina Flokks fólksins þar sem Sigurjón Þórðarson hefur verið einn ötulasti talsmaður strandveiðikerfisins.

Sigurjón mun þegar þing kemur saman taka við formennsku í atvinnuveganefnd þingsins. Hanna Katrín ræðir stöðu hans í ljósi fram kominna upplýsinga í viðtalinu.

Stefán Einar segir ánægjulegt að þátturinn sé farinn að vekja athygli og viðbrögð, jafnvel áður en hann er birtur.

„Það gefur fólki ástæðu til þess að fylgjast með þessu góða spjalli okkar ráðherrans. Hins vegar er ágætt að minna á þá gullnu reglu að gagnrýna hluti að athuguðu máli. Það er athyglisverð nálgun að gagnrýna sjónvarpsviðtal sem maður hefur ekki séð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert