Breyting á reglugerð um vöruúrval, innkaup og dreifingu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins er nú komin í samráðsgátt stjórnvalda. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er sá sem stendur fyrir breytingunni.
Breytingarnar koma til sem viðbragð við dómi Hæstaréttar sem féll í desember á síðasta ári þar sem áfengisinnflytjandinn Dista hafði betur gegn íslenska ríkinu í máli er varðaði sölu á bjór.
Málið má rekja til þess að ÁTVR felldi tvær bjórtegundir frá Dista úr vöruúrvali sínu og vildi hætta innkaupum á þeim þar sem þær höfðu ekki náð ákveðnu viðmiði um framlegð.
Dista kærði þessa ákvörðun í júní 2021 og fór málið í gegnum öll dómstig.
Taldi Hæstiréttur ÁTVR hafa skort lagastoð til að hætta sölu á bjórnum þar sem hvergi er minnst á í reglugerðinni að vöruúrval ÁTVR taki mið af framlegð heldur er aðeins minnst á eftirspurn.
„Þær breytingar sem lagðar eru til lúta fyrst og fremst að viðbrögðum við fyrrnefndum dómi Hæstaréttar, en einnig eru lagðar til nokkrar aðrar breytingar,“ segir í tilkynningunni.