Dómsmálaráðherra segir ráðherra almennt ekki eiga að ýja að ítökum sínum innan lögreglunnar eða vísa til stöðu sinnar í samfélaginu. Félagsmálaráðherra hafi sér að vitandi ekki gert það.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir var innt eftir skoðun sinni á slíku framferði ráðherra í samtali við blaðamann að ríkisstjórnarfundi loknum í dag, en lögreglan heyrir undir ráðuneyti hennar. Þá sagðist Þorbjörg Sigríður einnig vilja loka „símaveri Sjálfstæðisflokksins.“
Símtal Ingu Sæland, félags- og vinnumarkaðsráðherra, við skólameistara Borgarholtsskóla um týnt skópar barnabarns hennar hefur verið mikið í deiglunni að undanförnu, en skólameistarinn upplýsti starfsmenn skólans um að ráðherrann hefði minnst á stöðu sína í samfélaginu sem ráðherra og ýjað að ítökum sínum innan lögreglunnar sem slíkur.
Inga hefur neitað því að hafa gert nokkuð slíkt þó hún kunni vissulega að hafa farið fram úr sér, er hún sem hvatvís amma frekar en ráðherra tók upp tólið.
„Félagsmálaráðherra hefur sjálf svarað því og kannast við að þetta símtal hafi farið fram – og segist vera að læra og það er bara jákvætt og gott. En hún hefur verið mjög afdráttarlaus með það að þetta gerði hún ekki og ég veit ekki betur,“ segir Þorbjörg Sigríður.
„Þetta er tveggja manna samtal þar sem annar tjáir sig ekki og hún tjáir sig um að það hafi hún ekki gert og þá finnst mér liggja ljóst fyrir að svo var ekki.“
Innt eftir því hvort slíkt framferði myndi flokkast undir misbeitingu ráðherravalds ef svo hefði verið segir Þorbjörg ráðherra auðvitað almennt ekki eiga að haga sér með slíkum hætti.
„Ég hef t.d. verið mjög skýr með það í mínu embætti núna að reyna að loka þessu símaveri Sjálfstæðisflokksins þar sem var verið að hringja í embættismenn og þar sem var verið að hringja í lögreglustjóra, nótt sem dag, þetta viljum við ekki sjá,“ segir Þorbjörg Sigríður.
„Ég held að það þekki allir til hvers ég er að vísa þar,“ bætir hún við.
Þar vísar ráðherrann til máls Yazans Tamimi, sem vísa átti úr landi gegn læknisráði í fyrrahaust, en brottvísuninni var að lokum afstýrt og er málið er sagt hafa átt stóran þátt í stjórnarslitum sem urðu skömmu síðar
Í ljós kom að afskipti ráðherra af málinu voru þó nokkur en þrír þáverandi ráðherrar og fyrrverandi dómsmálaráðherra höfðu beint samband við ríkislögreglustjóra um morguninn en það voru Guðrún Hafsteinsdóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og Jón Gunnarsson.