Réðst á lögreglumenn og fangavörð

Átta gista fangaklefa nú í morgunsárið.
Átta gista fangaklefa nú í morgunsárið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Maður réðst á lögreglumenn og fangavörð með hnefahöggum þegar færa átti hann í fangaklefa í gærkvöld.

Tveir voru færðir í fangageymslur vegna skemmdarverka en þegar færi átti annan þeirra í fangaklefa réðst hann á lögreglumenn og fangavörð.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Á þessu tímabili eru skráð 51 mál í kerfi lögreglunnar og gista átta fangageymslur vegna mála.

Einn var vistaður vegna gruns um líkamsárás í miðborginni og þá voru höfð afskipti af einum vegna þjófnaður og fjársvika í matvöruverslun. Þrír voru handteknir vegna rannsóknar á húsbroti.

Lögreglumenn á lögreglustöð 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, gerði athugasemdir við dökkar filmur í fremri hliðarúður bifreiðar en slíkt er í andstöðu við reglugerð um gerð og búnað ökutækja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert