Ólafur E. Jóhannsson
„Við fögnum þessum fyrirætlunum og munum styðja þær, því það er lykilatriði að þessi framkvæmd, sem er löngu ákveðin, komist af stað,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið.
Leitað var viðbragða hans við ummælum arftaka hans í ráðuneytinu, Jóhanns Páls Jóhannssonar, í Morgunblaðinu í gær, um að frumvarp verði lagt fram á Alþingi strax í þingbyrjun, sem ætlað er að höggva á þann hnút sem Hvammsvirkjun er komin í í kjölfar nýfallins dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hann segir mikilvægt að ryðja strax úr vegi öllum hindrunum í kjölfar óvæntrar niðurstöðu héraðsdóms og að sama skapi að halda áfram að einfalda og afhúða regluverk og hleypa fleiri virkjunarkostum í nýtingarflokk.
„Dómurinn kom mjög á óvart og hefur eðlilega fengið mikla gagnrýni. En nú er mikilvægt að koma þeim verkefnum sem lengst eru komin hnökralaust af stað. Það þarf að koma fleiri virkjunarkostum í nýtingarflokk og ráðherrann er með á sínu borði tvær rammaáætlanir sem ég vona að hann leggi strax fram. Þær hafa farið í gegnum öll lögbundin ferli og eiga bara eftir að fá afgreiðslu á Alþingi,“ segir Guðlaugur Þór.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag