Samþykkja innanhússtillöguna

Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur samþykkt innanhústillögu ríkissáttasemjara.

Þetta segir í tilkynningu frá sambandinu.

„Stjórn Samband íslenskra sveitarfélaga lýsir yfir vilja að fara í þá vegerð sem ríkissáttasemjari hefur lagt fram í kjaradeilu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands, þrátt fyrir að tillagan feli í sér talsverðan kostnað. Stjórn telur mikilvægt að sýna samningsvilja, og eftir fund með framkvæmdastjórum sveitarfélaga, samþykkir stjórn að ganga frá kjarasamningnum við þessa mikilvægu stétt,“ segir í tilkynningunni.

„Stjórnin er sammála þeirri aðferðarfræði sem kemur fram í tillögunni um þá vegferð sem lagt er upp með í tengslum við virðismat kennara og verkáætlun til 20 mánaða. Stjórn samþykkir því samhljóða að veita Samninganefnd sveitarfélaga umboð til að ganga að innanhússtillögu ríkissáttasemjara.“

KÍ hefur til klukkan 13 á morgun

Samninganefnd Kennarasambands Íslands hefur til klukkan 13 á morgun til að bregðast við tillögunni. 

Fari svo að KÍ hafni henni munu verkfallsaðgerðir hefjast á ný á morgun og ná til fjórtán leikskóla og sjö grunnskóla. 

Verkfallsaðgerðinar yrðu tímabundnar í grunnskólunum en ótímabundnar í leikskólunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert