„Það eru allir aðilar málsins hundfúlir yfir þessari tillögu. Það finnst þetta öllum ómögulegt,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari heldur mæðulega yfir símann í samtali við blaðamann mbl.is.
Ástráður lagði fram svokallaða innahústillögu í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga í gær.
Tillagan felur meðal annars í sér að deila um jöfnun launa á milli markaða verði útkljáð með virðismati og verkáætlun til 20 mánaða.
Þar sem ekki er um miðlunartillögu að ræða fer hún ekki beint í atkvæðagreiðslu hjá félagsfólki Kennarasambands Íslands.
Um er að ræða tillögu til samninganefndanna um það hvernig kjarasamningur í heild sinni gæti litið út. Ef tillagan verður samþykkt undirrita aðilar og þar með er kominn á kjarasamningur og friðarskylda. Tillagan gengi svo til atkvæða.
Segir Ástráður að nú sé aftur komin tíð hinna reykfylltu bakherbergja. Menn séu að tala sig saman og að það verði bara að eiga sinn tíma. Tíminn er þó af skornum skammti enda hafa samninganefndirnar einungis tíma til klukkan 13 á morgun til að taka afstöðu til tillögunnar.
„Sjálfsagt er fólk örugglega eitthvað að hittast eða tala saman í síma en við verðum bara að sjá hvað verður á morgun. Þangað til sit ég bara hér og tel á mér tærnar og bíð eftir því hvað gerist,“ segir Ástráður.