Sjálfstæðisflokkurinn heldur þingflokksherberginu

Þingflokksherbergi sjálfstæðismanna, sem þeir hafa haldið í 84 ár, er …
Þingflokksherbergi sjálfstæðismanna, sem þeir hafa haldið í 84 ár, er málað bláum lit og þar hanga málverk af formönnum og þingforsetum. Myndin er úr safni mbl.is

Ákvörðun hefur verið tekin um að Sjálfstæðisflokkurinn haldi þingflokksherbergi sínu á Alþingi, líkt og hann hefur gert frá árinu 1941.

Þetta staðfestir Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður flokksins, í samtali við mbl.is.

Verja hefðir og reglur Alþingis

„Það ber að fagna þessari niðurstöðu enda er hún í samræmi við reglur forsætisnefndar sem eru skýrar í þessu málefni. Þær voru settar í þverpólitískri sátt svo valdhafar gætu einmitt ekki gert það sem þeim sýnist hverju sinni,“ segir Hildur og bætir við:

„Ég sýni því alveg skilning að fólki finnist kannski skrítið að verið sé að eyða tíma í svona mál, en hér vorum við að verja hefðir og virðingu fyrir reglum Alþingis. Þetta er stærra prinsipp mál en það lét yfir sèr og ég er ánægð með þessa niðurstöðu.“

Líkt og fjallað hafði verið um í Morgunblaðinu hafði þingflokkur Samfylkingarinnar gert kröfu um að fá úthlutað þingherberginu í krafti stærðar sinnar, en eftir síðustu kosningar varð Samfylkingin að þeim flokki sem flesta þingmenn hefur.

Sjálfstæðismenn andmæltu þessari kröfu hins vegar og sögðu flokkinn hafa haft herbergið frá árinu 1941 og að samkvæmt reglum forsætisnefndar ætti almennt að miða við að þingflokkar haldi þing­flokks­her­bergj­um sín­um nema nauðsyn annarra og stærri þing­flokka kalli á breyt­ing­ar.

Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, hefur nú látið flokkana vita um niðurstöðu sína og verður Sjálfstæðisflokkurinn áfram með sitt gamla herbergi.

Sam­fylk­ing­in fékk 15 þing­menn kjörna í nýliðnum kosn­ing­um en Sjálf­stæðis­flokk­ur 14.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert