Vonskuveðri er spáð á landinu í dag og hafa verið gefnar út appelsínugular og gular viðvaranir sem taka gildi á hádegi.
Á Breiðafirði, Suðausturlandi og á miðhálendinu verða appelsínugular viðvaranir en gular í öðrum landshlutum.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að lægð nálgist landið í dag og það gengur í suðaustanstorm og jafnvel -rok með rigningu og hlýindum, en helst að mestu þurrt á Norður- og Austurlandi. Ekki er gert ráð fyrir snjókomu nema til fjalla. Veðurviðvaranir vegna asahláku verða í gildi um mest allt land. Hitinn verður víða 4 til 10 stig í kvöld og að 14 stigum norðanlands í nótt.
Á morgun er spáð sunnan 15-23 m/s með rigningu eða slyddu með köflum, en hægari og bjart með köflum norðaustanlands. Dregur heldur úr vindi síðdegis. Hitinn verður 2 til 8 stig, hlýjast fyrir norðan.