Vegurinn á milli Ísafjarðar og Súðavíkur hefur verið opnaður á ný en honum var lokað í nótt eftir að snjóflóð féll á veginn skömmu eftir miðnætti.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Vestfjörðum en þar segir að veðurspáin sé með þeim hætti að það gæti komið til lokunar með litlum fyrirvara.
Gular og appelsínugular veðurviðvaranir verða í gildi um allt land í dag frá kl. 12.00 og hvetur Vegagerðin alla þá sem hyggjast á langferðir næstu daga að fylgjast vel með færð á vegum og veðurspám þar sem akstursskilyrði verði erfið næstu daga vegna veðurs.