Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, en hefð er fyrir að formennska þeirrar nefndar sé á forræði stjórnarandstöðunnar.
Nú verður Alþingi sett á þriðjudaginn og var tillaga Hildar Sverrisdóttur, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, um nefndaskipan þingmanna flokksins fyrir komandi kjörtímabil samþykkt einróma á þingflokksfundi í morgun.
Þá verður Bryndís Haraldsdóttir fyrsti varaforseti Alþingis og Guðrún Hafsteinsdóttir varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.
Guðrún Hafsteinsdóttir verður varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar og mun Jón Pétur Zimsen einnig sitja í nefndinni.
Jón Gunnarsson verður annar varaformaður atvinnuveganefndar og með honum í nefndinni mun Njáll Trausti Friðbertsson sitja.
Vilhjálmur Árnason og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir munu sitja í efnahags- og viðskiptanefnd.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson munu sitja í fjárlaganefnd.
Líkt og fram kom verður Bryndís Haraldsdóttir fyrsti varaforseti í forsætisnefnd.
Þá munu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Jón Pétur Zimsen sitja í framtíðarnefnd.
Jens Garðar Helgason og Ólafur Adolfsson munu sitja í umhverfis- og samgöngunefnd.
Vilhjálmur Árnason verður formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og með honum mun Bryndís Haraldsdóttir sitja.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verður annar varaformaður utanríkismálanefndar og mun Diljá Mist Einarsdóttir einnig sitja í nefndinni.
Njáll Trausti Friðbertsson og Rósa Guðbjartsdóttir munu sitja í velferðarnefnd.
Hvað varðar Íslandsdeildir munu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Bryndís Haraldsdóttir sitja í Norðurlandaráði.
Þá verður Diljá Mist Einarsdóttir varaformaður þingmannanefndar EFTA og EES.
Guðrún Hafsteinsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson munu sitja í Vestnorræna ráðinu og
Hildur Sverrisdóttir í Alþjóðaþingmannasambandinu.
Þá verður Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður á NATO-þingi.