Óvissustigi lýst yfir á Austfjörðum

Óvissustig er nú í gildi fyrir Austfirði alla.
Óvissustig er nú í gildi fyrir Austfirði alla. mbl.is/Golli

Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austfjörðum. Óvíst er hvenær því verður aflétt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

„Í kjölfar hlýinda og rigninga hafa krapaflóð fallið á Austfjörðum í nótt, meðal annars í Berufirði, við Stöðvarfjörð og í sunnanverðum Fáskrúðsfirði. Óvissustig er nú í gildi fyrir Austfirði alla,“ segir í tilkynningunni.

Þá eru vegfarendur og ferðamenn hvattir til að sýna aðgæslu á stöðum þar sem grjót getur fallið og nærri vatnsfarvegum þar sem krapaspýjur geta borist niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert