Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, sé ekki vanhæfur þegar kemur að tilvonandi strandveiðifrumvarpi. Sigurjón á strandveiðibát sem hann hefur gert út síðustu ár og sem verðandi formaður atvinnuveganefndar mun frumvarpið koma til kasta nefndarinnar sem hann leiðir.
Líkt og fram kom í Spursmálum á mbl.is á Sigurjón ásamt eiginkonu sinni fyrirtækið Sleppa ehf. sem gert hefur út bátinn Sigurlaugu SK 138 til strandveiða hin síðustu ár og hafa tekjur af útgerðinni numið tugum milljóna króna.
„Hvað finnst þér um öryrkjann mig, á ég að vera skipta mér af kjörum öryrkja? Hvað finnst þér um bændur eða aðrar stéttir? Heilbrigðisstarfsfólk og annað slíkt. Meginreglan er sú að almenn löggjöf á Alþingi Íslendinga gerir ekki alþingismenn vanhæfa að einu eða neinu leyti,“ segir Inga Sæland í samtali við mbl.is spurð að því hvort að Sigurjón eigi að eiga aðkomu að frumvarpinu við meðferð þingsins.
Í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar má sjá að frumvarp verður lagt fram á vorþinginu um stóreflingu strandveiða sem á að tryggja að veiðar geti staðið yfir í 48 daga.
Útgerðin Sleppa ehf. gæti því notið verulega góðs af þessum breytingum. Eins má gera ráð fyrir því að verðlagning á bátum sem gerðir eru út í þessu skyni kunni að taka breytingum í ljósi þess að tekjuöflunarmöguleikar strandveiðisjómanna munu vænkast til muna.
Sigurjón hefur sagt bátinn vera í söluferli.
Spurð hvort að Sigurjón sé ekki vanhæfur í ljósi þess að hann gæti grætt á frumvarpinu, verði það samþykkt, sem hann á eftir að eiga aðkomu að segir Inga:
„Það í rauninni skiptir engu máli hvað lýtur að almennri löggjöf sem sett er, að við erum ekki vanhæf þar.“
Þannig hann er ekki vanhæfur að þínu mati?
„Nei hann er það ekki.“
Í Spursmálum var Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra til viðtals og þar fullyrti hún að Sigurjón myndi ekki koma að afgreiðslu málsins vegna þeirra hagsmuna sem hann gætir af því að strandveiðar verði stórauknar.
Eins og greint hefur verið frá þá sinnti Sigurjón ekki upplýsingaskyldu sem á honum hvílir þegar kemur að hagsmunaskráningu Alþingis.
Þannig má sjá að í þriðju grein skráningarinnar segist hann engin tengsl hafa við starfsemi sem „rekin er samhliða starfi alþingismanns og er tekjumyndandi fyrir hann eða félag sem hann á sjálfur eða er meðeigandi í.“
Samt á hann útgerðina Sleppa ehf. ásamt konu sinni.