Búið er að loka bæði Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði vegna óveðurs.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra segir að gera megi ráð fyrir að fleiri fjallvegir verði lokaðir eftir því sem líður á kvöldið.
Þá er ökumönnum bent á að fylgjast með færðinni á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is