Selja Íslandsbanka og gefa almenningi forgang

Formenn stjórnarflokkanna kynntu áætlun sína í dag.
Formenn stjórnarflokkanna kynntu áætlun sína í dag. Samsett mynd

Ljúka á við sölu Íslandsbanka með gagnsæju og traustu ferli þar sem almenningur hefur forgang.

Svo hljóðar liður í nýkynntri áætlun ríkisstjórnarinnar, þar sem farið er yfir þau mál sem formenn stjórnarflokkanna vilja setja á oddinn á þessu ári.

Allir samstiga í ríkisstjórn

Daði Már Kristó­fers­son fjár­málaráðherra hefur áður í samtali við mbl.is sagst stefna að því að klára sölu bank­ans á vorþingi.

„Þetta er gríðarlega mik­il­vægt mál þannig að þetta mun fá ít­ar­lega kynn­ingu þegar það verður lagt fram,“ sagði Daði í síðasta mánuði.

Aðspurður sagði hann alla innan ríkisstjórnarinnar hafa verið samstiga um að bankinn yrði seldur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert