Björgólfur Guðmundsson athafnamaður lést sunnudaginn 2. febrúar 2025 á 85. aldursári.
Hann fæddist 2. janúar 1941, sonur hjónanna Kristínar Davíðsdóttur húsmóður og Guðmundar Ólafssonar bílstjóra og ólst upp ásamt fimm systkinum á Framnesvegi. Hann stundaði íþróttir með KR og gekk í Melaskóla, Gagnfræðaskólann við Hringbraut og síðan Verslunarskólann og útskrifaðist þaðan stúdent 1962.
Björgólfur stofnaði Dósagerðina hf. 1962, en var 1977 ráðinn forstjóri Hafskips hf., sem hann stýrði til 1986. Næstu ár starfaði hann einkum í Danmörku, en var 1991 ráðinn forstjóri Gosan, síðar Viking Brewery. Árið 1995 stofnaði hann drykkjagerðina Bravo í Pétursborg í Rússlandi, m.a. í félagi við son sinn Björgólf Thor. Upp frá því sinnti Björgólfur fjárfestingum og stjórnarsetu í fjölda fyrirtækja, þar á meðal Bravo International, Pharmaco, Primex og Balkanpharma, en fjárfesti einnig í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Eftir kaup á Landsbankanum árið 2003 tók Björgólfur að sér formennsku í bankaráði hans til fjármálahrunsins 2008. Hann var formaður stjórnar Portusar hf. sem hannaði og hóf byggingu Hörpu og aðaleigandi fótboltafélagsins West Ham í Lundúnum 2006-2009.
Björgólfur tók ríkan þátt í félagsmálum, gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn, um hríð formaður Varðar, einn stofnenda SÁÁ og formaður um árabil, formaður knattspyrnudeildar KR 1998-2002 og lengi aðalræðismaður Búlgaríu. Björgólfur studdi margvísleg velferðar-, mennta- og menningarmál, m.a. með stofnun Minningarsjóðs um Margréti dóttur sína. Hann var sæmdur fálkaorðunni 2005.
Árið 1963 gekk Björgólfur að eiga Þóru Hallgrímsson (f. 1930, d. 2020) og áttu þau saman fimm börn, Örn Friðrik Clausen (látinn), Hallgrím, Margréti (látin), Bentínu og Björgólf Thor. Barnabörn Þóru og Björgólfs eru 11 og barnabarnabörn jafnmörg.