Lísbet Sigurðardóttir er gengin til liðs við Viðskiptaráð þar sem hún hefur verið ráðin í stöðu lögfræðings á málefnasviði. Hún kemur til ráðsins frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins en hún hefur starfað þar frá árinu 2021.
Störf hennar munu fyrst og fremst lúta að lögfræðilegum greiningum og úttektum, málefnastarfi, gerð umsagna fyrir hönd ráðsins, greinaskrifum, þátttöku í stefnumótun og fleiri verkefnum ráðsins.
Lísbet lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2020 og BA prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2018.
Áður starfaði hún m.a. sem lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, sem laganemi á lögfræðistofunni Jónatansson & Co. og sem blaðamaður á Morgunblaðinu.