Héraðsdómur Reykjavíkur hefur orðið við kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og framlengt gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er grunaður um hnífstunguárás á Kjalarnesi.
Að sögn lögreglu hefur gæsluvarðhaldið verið framlengt um fjórar vikur, eða til 3. mars, á grundvelli almannahagsmuna.
Málið varðar árás sem átti sér stað á nýársnótt. Þá hlutu tveir stungusár í árásinni og hlaut annar þeirra lífshættulega áverka.