Myndir: Þingmenn mættu á þingsetningarathöfn Siðmenntar

Arnar Þór Ingólfsson, starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar, Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður …
Arnar Þór Ingólfsson, starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar, Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar, Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar og Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þingmenn frá Samfylkingu, Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum voru við þingsetningarathöfn Siðmenntar sem haldin var frá kl. 11.45 til 12.45, en hefðbundin þingsetningarathöfn hefst klukkan 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni, áður en þingmenn halda yfir í Alþingishúsið.

Athöfn Siðmenntar fór fram í Tjarnarbíói.

Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, María Rut Kristinsdóttir, Grímur Grímsson …
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, María Rut Kristinsdóttir, Grímur Grímsson og Jón Gnarr, þingmenn Viðreisnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar, setti athöfnina með stuttu ávarpi og Gunnar Hersveinn, heimspekingur og athafnastjóri hjá Siðmennt, flutti hugvekju.

Þá var boðið upp á tónlistaratriði.

Gunnar Hersveinn, heimspekingur og athafnastjóri hjá Siðmennt, og Bryndís Haraldsdóttir, …
Gunnar Hersveinn, heimspekingur og athafnastjóri hjá Siðmennt, og Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tekið var fram í boði á athöfn Siðmenntar að hún skaraðist ekki á við guðsþjónustuna og því væri mögulegt fyrir þingmenn að mæta á báða staði.

Þingsetningarathöfn Siðmenntar í Tjarnarbíói.
Þingsetningarathöfn Siðmenntar í Tjarnarbíói. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar.
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Arnar Þór Ingólfsson og Ásta Guðrún Helgadóttir, starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar, …
Arnar Þór Ingólfsson og Ásta Guðrún Helgadóttir, starfsmenn þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert