Myndir: Víða tjón eftir kröftuga vindhviðu

Vindhviða olli miklu tjóni í Neskaupstað í gær.
Vindhviða olli miklu tjóni í Neskaupstað í gær. Samsett mynd

Gróðurhús fór á hliðina, tjón varð á bílum, myndarlegt grenitré fór í tvennt og rúður brotnuðu í strætóskýli og tveimur skólum, þegar óvenju öflugrar vindhviðu varð vart í gærmorgun.

Hviðan, sem fann sér leið í gegnum Neskaupstað með þessum afleiðingum, mældist 54 metrar á sekúndu á veðurstöð við Nesskóla klukkan 9.16.

Austurfrétt greindi fyrst frá. 

Náðu að forða sér

Brynjar Rúnarsson, húsvörður Nesskóla, var í matsal grunnskólans þegar opnanlegt fag fauk út og skelltist svo aftur með þeim afleiðingum að rúða sprakk. 

Í samtali við mbl.is segir hann tvo nemendur hafa staðið við gluggann þegar fagið fauk upp og náðu þeir að forða sér áður en rúðan small til baka.

Einnig varð tjón á bílum á bílastæði grunnskólans í ofsaveðrinu þegar grjót fauk á ökutækin.

Viðarplata er komin í stað rúðunnar sem brotnaði í Nesskóla. …
Viðarplata er komin í stað rúðunnar sem brotnaði í Nesskóla. Tveir nemendur stóðu við vatnsvélina, rétt fyrir framan gluggann, þegar glugginn fauk upp. Þeir náðu að forða sér áður en hann skall til baka. Ljósmynd/Brynjar Rúnarsson

Hnausþykkt gler brotnaði

Þá brotnaði gler í anddyri Verkmenntaskóla Austurlands.

Jóhann Tryggvason húsvörður skólans segir tjónið smávægilegt. Glerið hafi þó verið „hnausþykkt“ og ætti það að standa af sér sterkar hviður.

Hann segir skemmdirnar í bænum allar vera á tiltölulega afmörkuðu svæði.

Gler í anddyri Verkmenntaskóla Austurlands brotnaði. Hér má sjá hvar …
Gler í anddyri Verkmenntaskóla Austurlands brotnaði. Hér má sjá hvar glerið var. Ljósmynd/Jóhann Tryggvason
Glerið var hnausþykkt. Hér má sjá hvar það brotnaði.
Glerið var hnausþykkt. Hér má sjá hvar það brotnaði. Ljósmynd/Jóhann Tryggvason

Á von á meiri skemmdum

Jóhann og Brynjar segja einnig rúðu í strætóskýli hafa brotnað, myndarlegt grenitré hafa farið í tvennt og gróðurhús, sem stóð nálægt leikskólanum, hafa fokið á hliðina. 

Í umfjöllun Austurfréttar kemur einnig fram að rúða hafi brotnað í dráttarvél á Kirkjubóli í Norðfjarðarsveit og sömuleiðis rúður í bíl sem stóð við Kjörbúðina.

Hlynur Sveinsson, veðuráhugamaður í Neskaupstað, sagðist í samtali við miðilinn eiga von á því að meiri skemmdir ættu eftir að koma í ljós. 

Á fjórum veðurstöðvum í firðinum í gær mældi hann hviður sem fóru yfir 50 m/s.

Í samtali við mbl.is segir Daði Benediktsson, formaður björgunarsveitarinnar Gerpis, ekkert útkall hafa borist björgunarsveitinni á svæðinu.

Hér má sjá gróðurhúsið sem fór á hliðina.
Hér má sjá gróðurhúsið sem fór á hliðina. Ljósmynd/Brynjar Rúnarsson
Myndarlegt grenitré brotnaði í tvennt.
Myndarlegt grenitré brotnaði í tvennt. Ljósmynd/Jóhann Tryggvason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert