Óvissustigi á Austfjörðum aflétt

Óvissustigi vegna ofanflóðahættu á Austfjörðum hefur verið aflétt.
Óvissustigi vegna ofanflóðahættu á Austfjörðum hefur verið aflétt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óvissustigi vegna ofanflóðahættu sem tók gildi á föstudagskvöld á Austfjörðum hefur nú verið aflétt.

Frá þessu er greint á vef Veðurstofunnar en nokkur krapahlaup féllu yfir vegi á sunnanverðum Austfjörðum þegar asahláka gekk yfir á föstudag og laugardag.

„Það stytti upp á laugardag og var veður skaplegt fram undir sunnudagkvöld en þá hvessti aftur með talsverðri rigningu og var því vel fylgst með farvegum þar sem krapahlaup gætu fallið. Nú hefur dregið verulega úr úrkomu og heldur kólnað þó enn sé hiti yfir frostmarki á láglendi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert