Samfylking og Píratar þurftu að „kyngja“ tillögunni

„Tíðindin eru kannski þau að meirihlutinn fór ekkert í grafgötur með skoðanaágreining sinn í flugvallarmálinu þar sem hver Framsóknarmaðurinn á fætur öðrum steig í pontu og lýsti stuðningi við tillögu okkar. En það eru einnig tíðindi að Samfylking og Píratar þurfa að kyngja því að tillaga um að flugvöllurinn verði út skipulagstímabilið (til 2040) fái frekari skoðun,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Á fundi borgarstjórnar í kvöld var samþykkt að vísa tillögu Sjálfstæðisflokksins um atvinnuuppbyggingu á flugvellinum í Vatnsmýri til umhverfis- og skipulagsráðs.

Tillaga Sjálfstæðismanna fékk hljómgrunn á fundi borgarstjórnar.
Tillaga Sjálfstæðismanna fékk hljómgrunn á fundi borgarstjórnar. mbl.is/Árni Sæberg

Málinu vísað í nefnd 

„En við erum svo sem vön því að þegar upp kemur ágreiningur í meirihlutanum þá er málunum vísað í nefnd,“ segir Hildur. 

Hún segir málum áður hafa verið vísað á hinn pólitíska vettvang og svo fái þau ekki framgang inni í nefndunum sem setja málin í farveg.

„Við munum fylgja málinu vel eftir,“ segir Hildur. 

Hún segir óljóst hvort meirihluti sé fyrir málinu í borgarstjórn. Þannig hafi Viðreisn og Vinstri grænir, t.a.m. ekki tjáð sig mikið um málið.  

Ekki allir tilbúnir að horfa raunsætt á málið 

Það er al­veg sama hvort fólki finnist að flug­völl­ur­inn eigi að vera áfram í Vatns­mýr­inni eða hvort það telji hann eiga að víkja. Veru­leik­inn er sá að það er ekki búið að finna stað fyr­ir nýja miðstöð inn­an­lands­flugs og Hvassa­hraun er út úr mynd­inni sem stendur. Flugvöllurinn verður því óhjákvæmilega staðsettur í Vatnsmýri að minnsta kosti út skipulagstímabilið, og á meðan hann er þar þá verðum við auðvitað að tryggja rekstr­ar- og flu­gör­yggi á svæðinu. Það er raun­sæ­is­matið á þessu máli. En það eru ekki all­ir til­bún­ir að líta málið raun­sæj­um aug­um.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert