Alma tryggir vakt á meðan illviðrið gengur yfir

Búið er að tryggja sólarhringsmönnun fjarskiptalæknis bráðaþjónustu meðan illviðri gengur …
Búið er að tryggja sólarhringsmönnun fjarskiptalæknis bráðaþjónustu meðan illviðri gengur yfir landið. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samráði við Landspítala að tryggja sólarhringsmönnun fjarskiptalæknis bráðaþjónustu meðan illviðri gengur yfir landið.

Þetta segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Rauðar viðvaranir hafa nú verið gefnar út fyrir meirihluta landsins vegna þess ofsaveðurs sem spáð er á næsta sólarhring.

Rauð viðvörun tekur einnig gildi fyrir höfuðborgarsvæðið klukkan 16 í dag, þar sem foktjón er sagt mjög líklegt og að hættulegt geti verið að vera á ferð utandyra.

Veður geti gert sjúkraflutninga ómögulega

Segir í tilkynningunni að ljóst sé að við slíkar aðstæður geti samgöngur farið úr skorðum sem geti þar af leiðandi gert sjúkraflutninga torvelda eða ómögulega meðan ástandið varir.

„Hlutverk fjarskiptalæknis er að veita viðbragðsaðilum og heilbrigðisstarfsfólki stuðning í bráðum aðstæðum. Í því felst að sinna bráðri læknisfræðilegri ráðgjöf til viðbragðsaðila og heilbrigðisstarfsmanna. Verkefni fjarskiptalæknis eru meðal annars að styðja Neyðarlínuna þegar virkja þarf sjúkraþyrlu, forgangsraða sjúkrabílum og sjúkraflutningum.

Hann styður einnig við vinnu sjúkraflutningamanna og annarra viðbragðsaðila, þar með talið björgunarsveita Landsbjargar við að sinna sjúklingum á vettvangi. Þessu til viðbótar getur fjarskiptalæknir veitt heilbrigðisstarfmönnum stuðning til að takast á við bráð og alvarleg tilfelli sem alla jafna hefðu verið flutt á aðra heilbrigðisstofnanir svo sem sjúkrahúsið á Akureyri eða Landspítala,“ segir í tilkynningunni.

Áfram skal hringja í 112 í neyðartilvikum

Þá er vakin athygli á því að þurfi einstaklingar sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda skuli áfram hringja í síma 112 í neyðartilvikum eða síma 1700 til að fá ráðgjöf um heilbrigðisþjónustu. Viðbragðsaðilar og heilbrigðisstarfsmenn leiti svo til fjarskiptalæknis bráðaþjónustu eftir þörfum.

„Fjarskiptalæknir bráðaþjónustu starfar innan Landspítala sem sér um stjórnun og mönnun starfseminnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert