Jákvæð þróun í Karphúsinu í dag

Það var létt hljóðið í Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara þegar blaðamaður …
Það var létt hljóðið í Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara þegar blaðamaður náði tali af honum. mbl.is/Árni Sæberg

Jákvæð þróun varð í kjaraviðræðum kennara, ríkis og sveitarfélaga í dag og hefur lausnamiðað samtal komist í gang á milli deiluaðila. Hvort lausn deilunnar sé í sjónmáli þorir ríkissáttasemjari þó ekki að segja til um, en það er létt í honum hljóðið.

„Við erum á fullu að vinna hérna í húsinu, bæði grunnskólinn og framhaldsskólinn og það má segja að við höfum komist svolítið af stað í dag. En við vitum ekkert hvað við eigum mikið eftir,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is.

„Það hefur kastast af stað báðum megin þannig við erum í frekar jákvæðum, lausnamiðuðum fasa og við reynum að halda honum lifandi eins lengi og við getum. Þannig það er frekar jákvæð þróun á málum í dag,“ segir hann jafnframt.

Þarf ekki formlega samningafundi til

Ástráður hefur þó ekki tekið ákvörðun um hvort og þá hvenær hann boðar til næsta formlega samningafundar, enda skipti formlegheitin ekki öllu máli.

„Ég læt mér alveg í léttu rúmi liggja hvort samningafundir eru formlegir eða óformlegir, ég vil bara ná árangri. Ég læt það bara ráðast af því hvað hentar.“

Á mánudag hófust ótímabundin verkföll í fjórtán leikskólum og tímabundin verkföll í sjö grunnskólum, sem hafa áhrif á um 5.000 börn og fjölskyldur þeirra.

Í dag samþykktu svo kennarar í fimm framhaldsskólum að hefja ótímabundin verkföll þann 21. febrúar, náist samningar ekki fyrir þann tíma. Verkfall var einnig samþykkt í einum tónlistarskóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert