Kennarasambandið hefur boðað til verkfalla í fimm framhaldsskólum, sem hefjast 21. febrúar hafi samningar ekki náðst.
Í tilkynningu á vef sambandsins segir að boðað hafi verið til verkfalla í Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Borgarholtsskóla, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga 21. febrúar, hafi samningar ekki náðst í viðræðum sambandsins við ríki og sveitarfélög.
Í tilkynningunni kemur fram að félagsmenn í Félagi framhaldsskólakennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS) í skólunum fimm hafi kosið um verkfallsaðgerðir dagana 3.-5. febrúar og voru þær samþykktar í öllum skólunum með yfirgnæfandi meirihluta. Var kjörsókn í öllum tilfellum góð eða á bilinu 88% til 100%.
„Náist ekki samkomulag um kjarasamninga hefjast verkföll í þessum skólum 21. febrúar næstkomandi. Verkföllin verða ótímabundin,“ segir í tilkynningunni, en þar er einnig tekið fram að kjaraviðræðum Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum og Verzlunarskóla Íslands hefur verið vísað til ríkissáttasemjara.