Hvorki ráðherra né starfsmaður hafi lofað hækkunum

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra.

Mennta- og barnamálaráðuneytið segir hvorki ráðherra né starfsmann á hennar vegum hafa boðið eða gefið vilyrði um launahækkun til kennara.

Þetta kemur fram í tilkynningu Stjórnarráðsins. 

„Kjaradeila kennara hefur verið rædd í ríkisstjórn Íslands og leitað leiða til að liðka fyrir sátt í deilunni, svo sem með því að flýta virðismati starfa og/eða almennum aðgerðum í menntamálum.“

Segir einnig í tilkynningunni að mennta- og barnamálaráðherra hafi hitt forystu Kennarasambands Íslands á fundi fimmtudaginn 30. janúar ásamt forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Þar hafi meðal annars verið rætt um möguleika til að flýta virðismati starfa og aðgerðum í menntamálum.

Sögð hafa boðið tveggja pró­senta viðbótarhækkun

Stjórn­ar­andstaðan á Alþingi ósk­aði eftir svörum for­sæt­is­ráðherra vegna meintra af­skipta Ásthild­ar Lóu Þórs­dótt­ur mennta­málaráðherra  eða starfs­manns á henn­ar veg­um, í kjaraviðræðum Kenn­ara­sam­bands Íslands við ríki og sveit­ar­fé­lög.

Fregn­ir hermdu að ráðherra, eða starfsmaður á hans veg­um, hefðu boðið tveggja pró­senta launa­hækk­un til viðbót­ar við það sem þá var á borðinu, sem rík­is­sjóður myndi taka á sig til ein­hvers tíma í þeim til­gangi að liðka fyr­ir deil­unni.

Mennta- og barnamálaráðherra hitti forystu Kennarasambands Íslands á fundi fimmtudaginn 30. janúar ásamt forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar var meðal annars rætt um möguleika til að flýta virðismati starfa og aðgerðum í menntamálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert