Flugvélin hvarf yfir vatni

Vélin var á leið frá Unalakleet til Nome.
Vélin var á leið frá Unalakleet til Nome. Ljósmynd/Lögreglan í Nome

Bandaríska strandgæslan hefur veitt björgunarsveitum í Alaska aðstoð við að leita að lítilli flugvél sem er saknað. Níu farþegar voru um borð í vélinni auk flugmanns.

Lögregluyfirvöld í Alaska segja að vélin, Cessna á vegum flugfélagsins Bering Air, hafi verið á flugi frá Unalakleet til Nome þegar hún týndist. 235 kílómetrar eru á milli byggðarlaganna.

Greint frá síðustu skilaboðum flugmannsins

Að sögn slökkviliðsins í Nome voru síðustu skilaboð flugmannsins til flugumferðarstjórnarinnar þau að hann myndi hringsóla yfir flugvellinum á meðan flugbrautin væri hreinsuð fyrir lendingu.

Hefur slökkviliðið engar frekari upplýsingar um staðsetningu vélarinnar en tekur fram í yfirlýsingu að björgunarsveitir leiti vélarinnar á jörðu niðri og að bandaríska strandgæslan hafi ræst út flugvél til aðstoðar við leitina.

Hvarf yfir vatni

Fréttaveitan AFP greinir frá því að síðasta merki vélarinnar á ratsjá hafi verið um 40 mínútum eftir flugtak og hafi hún þá verið yfir vatni.

Tvö flug­slys hafa orðið í Banda­ríkj­un­um á síðustu dög­um og vik­um.

Þann 30. janú­ar rák­ust farþegaþota og herþyrla sam­an í Washingt­on með þeim af­leiðing­um að all­ir 67 um borð í vél­un­um fór­ust. Í kjöl­farið lét­ust sjö og nítj­án slösuðust þegar sjúkra­flug­vél hrapaði í Fíla­delfíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert