Allar fuglaflensuveirur sem greinst hafa hér á landi á síðastliðnu ári hafa verið af afbrigðinu H5N5 og því óskyldar H5N1 afbrigðinu er greinst hefur í mjólkurkúm í Bandaríkjunum, að því er fram kemur í tilkynningu Matvælastofnunar.
Fáir farfuglar koma frá Norður-Ameríku til Íslands á vormánuðum og telur MAST því litlar líkur á að afbrigðið er greindist í Bandaríkjunum berist hingað til landsins, þótt ekki sé hægt að útiloka það.
Algengasta afbrigði fuglaflensu í Evrópu er H5N1 en það hefur greinst í mörgum tegundum villtra fugla, alifugla og villtra spendýra.
Líða fer að því að farfuglar snúi aftur til landsins og fylgir því hætta á að þeir beri með sér ný afbrigði af inflúensuveirum.