Skólanum lokað vegna músagangs

Kæru leikskólans Sælukots var vísað frá úrskurðarnefnd.
Kæru leikskólans Sælukots var vísað frá úrskurðarnefnd. mbl.is/Golli

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru leikskólastjóra leikskólans Sælukots í Reykjavík vegna framferðis fulltrúa Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur þegar skólanum var lokað tímabundið í nóvember sl. vegna músagangs.

Nefndin segir að kærufrestur hafi verið liðinn þegar kæran barst.

Tveir fulltrúar Heilbrigðiseftirlitsins komu í skólann 5. nóvember til að taka út húsnæði leikskólans og fundu músagildrur og ummerki um mýs og fyrirskipuðu tafarlausa lokun leikskólans.

Leikskólastjórinn taldi að sú fyrirskipun hefði verið hóflaus og án málefnalegrar ástæðu því sú heilbrigðisógn sem til staðar hefði verið gæti ekki réttlætt svo harkalegar aðgerðir. Fullyrt var í kærunni að öll framganga fulltrúanna hefði einkennst af hömlulausum vilja til valdbeitingar og allur eftirleikurinn miðast við að réttlæta þessa valdbeitingu. Ábendingum, aðfinnslum og kröfum um úrbætur hefði verið hægt að mæta með viðeigandi úrbótum án lokunar.

Heilbrigðiseftirlitið krafðist þess að kærunni yrði vísað frá. Í umsögn eftirlitsins sagði að ákvörðun um stöðvun starfseminnar hefði fyrst og fremst tekin vegna mikilla ummerkja um meindýr í húsnæðinu. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert