Barátta Hafsteins mótaði Guðrúnu

Hafsteinn Kristinsson og Guðrún Hafsteinsdóttir á góðri stundu.
Hafsteinn Kristinsson og Guðrún Hafsteinsdóttir á góðri stundu. Ljósmynd/Aðsend

Guðrún Hafsteinsdóttir minntist föður síns í ræðu sinni í gær þegar hún tilkynnti um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi flokksins.

Rakti hún í ræðu sinni sögu Hafsteins og baráttu hans við valdakerfið – sem varð til þess að hann stofnaði ísgerðina Kjörís – sem hún sagði að kjarnaði sjálfstæðisstefnuna.

Faðir Guðrúnar var Hafsteinn Kristinsson. Hann fæddist 11. ágúst 1933 á Selfossi og lést 18. apríl 1993.

Bændur þvingaðir til hlýðni

Guðrún sagði frá því að hann hafi kosið að nýta hæfileika sína til þess að fjölga valkostum almennings við matarinnkaupin.

Hann hafi lagt allt undir með því að stofna fyrirtæki um framleiðslu osta.

„Sjálfstæðisstefnan kjarnast líka í baráttuþreki þessa manns þegar hann tókst á við ofríki valdakerfis þess tíma sem vildi kveða þetta einkaframtak í kútinn. Bændurnir sem seldu hinni sjálfstæðu ostagerð mjólk voru einn af öðrum þvingaðir til hlýðni, með einum eða öðrum hætti,“ sagði Guðrún.

Án hráefnis hafi engin framleiðsla á ostum verið. Fyrir vikið hafi skuldir sjálfstæðu ostagerðarinnar safnast upp svo stefndi í gjaldþrot.

Hafsteinn Kristinsson stofnaði Kjörís.
Hafsteinn Kristinsson stofnaði Kjörís. Ljósmynd/Aðsend

Rothögg yfirvaldsins

„Valdið sá sér leik á borði og reiddi til rothöggs með því að bjóðast til að kaupa framleiðslutæki fyrirtækisins fyrir nákvæmlega þá upphæð sem skuldin var í bankanum, þvílík tilviljun. Í smáa letrinu í samningnum fólst ákvæði um að eigandinn myndi aldrei nokkru sinni framar starfa í mjólkuriðnaði á Íslandi.“

Hafsteinn fékk þá ráð frá Sigurði Líndal lagaprófessor sem sagði honum að atvinnufrelsi væri stjórnarskrárbundin mannréttindi sem ekki væri hægt að afsala sér með pennastriki. Ákveðið væri því þýðingarlaust.

Hafsteinn skrifaði undir og þar með var ostagerðin farin en skuldirnar líka. „Það er ekki hægt að eiga minna en ekki neitt - héðan í frá liggur leiðin upp á við,“ sagði Hafsteinn.

Orð Hafsteins rættust og var Kjörís stofnað. Við tók „áratugalöng barátta fyrir frelsinu og einkaframtakinu, fyrir nýsköpuninni, fjölbreytninni og valfrelsi neytandans,“ eins og Guðrún orðaði það.

Guðrún Hafsteinsdóttir tilkynnti um framboð sitt í gær.
Guðrún Hafsteinsdóttir tilkynnti um framboð sitt í gær. mbl.is/Ólafur Árdal

Tók við Kjörís 23 ára

Þegar Guðrún var 23 ára varð faðir henn­ar bráðkvadd­ur og tók hún þá við rekstri fyr­ir­tæk­is­ins.

Sagði hún að bar­átta fjöl­skyldu henn­ar fyr­ir viðskiptafrelsi á Íslandi hafi mótað sig, sín gildi og sín­ar hug­sjón­ir, og verið sér ómet­an­legt vega­nesti um lífs­ins veg.

„Ég hef af eig­in raun upp­lifað hversu mik­il­vægt frelsið er og hversu mikl­ar af­leiðing­ar það get­ur haft ef það er brotið á bak aft­ur.

Ég hef líka lært hvernig fram­tak ein­stak­lings­ins get­ur skapað ótal tæki­færi, bara ef það fær að lifa og blómstra. Gildi sjálf­stæðis­stefn­unn­ar eru mér í raun í blóð bor­in.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert