Myndir: Heiðursvörður við útför Ólafar Töru

Fyrir utan kirkjuna stóð fólk heiðursvörð.
Fyrir utan kirkjuna stóð fólk heiðursvörð. mbl.is/Karítas

Ólöf Tara Harðardótt­ir bar­áttu­kona var jarðsungin í dag.

Útför Ólafar fór fram frá Grafarvogskirkju og þar fyrir utan stóð fjöldi fólks heiðursvörð þegar kistan var borin út að lokinni athöfninni.

Ólöf Tara var kraft­mik­il í bar­átt­unni gegn kyn­bundnu of­beldi og kom að stofn­un tveggja sam­taka, Öfga og Vit­und­ar, sem barist hafa öt­ul­lega fyr­ir breyt­ing­um í þágu þolenda of­beld­is.

mbl.is/Karítas

Skildi eftir sig stór spor

Fjölskylda og vinir Ólafar fara fögrum orðum um hana í minningargreinum í Morgunblaðinu í dag.

„Ólöf Tara skildi eftir sig stór spor og minning hennar mun lifa í óeigingjörnu og mikilvægu baráttunni hennar. Drifkraftur Ólafar, kjarkur og seigla voru aðdáunarverð. Hláturinn og fallega brosið sem lýsti allt upp,“ sögðu baráttusystur Ólafar úr Öfgum.

mbl.is/Karítas

Eldurinn má ekki slokkna

„Hún stóð í eldinum, tók ágjöf en barðist áfram til síðasta dags,“ sagði Drífa Snædal fyrir hönd Stígamóta. „Eldurinn sem logaði innra með Ólöfu Töru má ekki slokkna og það er okkar ábyrgð að halda honum lifandi.“

„Ein manneskja breytir ekki samfélagi. En mikið komst Ólöf Tara nálægt því. Ekki af því að hún hafði haft vald eða verið í stöðu til að breyta, heldur af því að hún lagði hjarta sitt og sál í að standa með konum,“ sögðu Hildur Lillendahl Viggósdóttir og Sóley Tómasdóttir, vinkonur Ólafar.

Embætti land­lækn­is bend­ir á að mik­il­vægt sé að þeir sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir segi ein­hverj­um frá líðan sinni, hvort sem er aðstand­anda eða hafi sam­band við Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717, eða á net­spjalli 1717.is, við hjúkr­un­ar­fræðing í net­spjalli á heilsu­vera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-sam­tak­anna s. 552-2218. Píeta-sam­tök­in bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyr­ir aðstand­end­ur þeirra sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir.

Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi bend­ir land­læknisembættið á stuðning í sorg hjá Sorg­armiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-sam­tök­un­um í síma 552-2218.

mbl.is/Karítas
Forsætisráðherra signar yfir kistu Ólafar Töru.
Forsætisráðherra signar yfir kistu Ólafar Töru. mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
Forseti Íslands signar yfir kistu Ólafar Töru.
Forseti Íslands signar yfir kistu Ólafar Töru. mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert