Myndskeið: Mótmæli kennara berast inn í þingsal

Fjöldi kennara er samankominn fyrir utan hús Alþingis við Austurvöll, þar sem stefnuræða forsætisráðherra og andsvör hennar eru flutt í kvöld.

Efndu þeir þar til samstöðufundar vegna yfirstandandi kjaradeilna.

Mikil læti eru fyrir utan húsið og hafa þau ekki farið framhjá neinum þingmanni enda heyrast þau vel inni í þingsal.

Fyrir utan þinghúsið við Austurvöll í kvöld.
Fyrir utan þinghúsið við Austurvöll í kvöld. mbl.is/Eyþór
Kennarar efndu til samstöðufundar við Alþingishúsið.
Kennarar efndu til samstöðufundar við Alþingishúsið. mbl.is/Eyþór

Gengið mjög illa

„Það má segja í stuttu máli að það hafi gengið mjög illa og þess­ar fest­ur sem við höf­um verið í hafa ekk­ert losnað,“ sagði Ástráður Har­alds­son rík­is­sátta­semj­ari um gang kjaraviðræðna kennara í samtali við mbl.is síðdegis.

Hann tel­ur að úr­sk­urður Fé­lags­dóms í gær, um að verk­föll kenn­ara í þrett­án leik­skól­um og sjö grunn­skól­um væru ólög­mæt, hafi haft nei­kvæð áhrif á viðræðurn­ar. Al­var­legt van­traust ríki á milli aðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert