Lítil átök verða í veðrinu en í dag verður austlæg átt 3-10 m/s og skúrir eða él. Hitinn verður 0 til 6 stig.
Það bætir heldur í vindinn í kvöld. Á morgun verður austan 10-18 m/s sunnanlands og smá væta. Hitinn verður 3 til 7 stig. Vindur verður hægari um norðanvert landið. Þar verður þurrt að mestu og heldur svalara í veðri.