Nokkrir vegir á Vesturlandi eru á hættustigi vegna bikblæðinga.
Í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, segir að hættustig sé í gildi á Bröttubrekku, í gengum Dalina, yfir Svínadal og út Hvolsdal en einnig á veginum yfir Vatnaleið, undir Hafursfelli og að Heydalsafleggjara.
Þá varar Vegagerðin við holum víða um landið en umhleypingarnar í veðri á síðustu dögum hafa mikil áhrif á holumyndun á vegum.