Ekkert kvikuhlaup í kjölfar skjálfta

Það gæti dregið til tíðinda á Reykjanesskaga á næstu dögum.
Það gæti dregið til tíðinda á Reykjanesskaga á næstu dögum. mbl.is/Hákon

Ekk­ert kviku­hlaup kom í kjöl­far þriggja skjálfta sem urðu á átt­unda tím­an­um við Sund­hnúkagígaröðina. Á næstu dög­um eða vik­um gæti þó farið að draga til tíðinda.

Þetta seg­ir Krist­ín Elísa Guðmunds­dótt­ir, nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur á Veður­stofu Íslands, í sam­tali við mbl.is.

Eins og mbl.is greindi frá fyrr í kvöld þá urðu skjálft­ar á milli klukk­an 19.46 og 19.47. Í kjöl­far sagði Veður­stof­an að verið væri að kanna hvort að kviku­hlaup væri mögu­lega að hefjast.

„Það fór ekk­ert kviku­hlaup af stað

„Þetta er spurn­ing hvort að hann [kviku­gang­ur­inn] hafi verið að hósta aðeins en svo hef­ur ekk­ert gerst meira,“ seg­ir Krist­ín.

„Það fór ekk­ert kviku­hlaup af stað þarna.“

Hún seg­ir að þegar svona ger­ist þá séu menn á Veður­stof­unni á tán­um „því þetta byrjaði á svipuðum stað og kviku­hlaup­in hafa byrjað“.

Get­ur dregið til tíðinda á næstu dög­um

Sjö­unda eld­gos­inu á Sund­hnúkagígaröðinni frá því í des­em­ber 2023 lauk 9. des­em­ber og nú hef­ur landris náð svipuðu marki og fyr­ir síðasta gos í nóv­em­ber.

„Við erum kom­in á þann stað að það er lík­legt að það fari að draga til tíðinda næstu daga eða vik­ur. En það er ákveðin óvissa í þessu,“ seg­ir Krist­ín.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert