Sveitarfélög þurfa að skera niður

Ekki var gert ráð fyrir launahækkunum kennara í áætlunum sveitarfélaga.
Ekki var gert ráð fyrir launahækkunum kennara í áætlunum sveitarfélaga. mbl.is/Karítas

Nýir kjara­samn­ing­ar kenn­ara hafa sett fjár­hags­áætlan­ir sveit­ar­fé­laga og bæj­ar­fé­laga úti um allt land á hliðina, því hvergi var gert ráð fyr­ir tuga og hundraða millj­óna aukn­ingu á fjár­út­lát­um sveit­ar­fé­lags­ins í fjár­hags­áætl­un­um.

Fundað er nú stíft um landið og eng­inn þeirra sveit­ar- og bæj­ar­stjóra sem Morg­un­blaðið ræddi við vildi gefa upp hvar yrði skorið niður vegna auk­inna út­gjalda. Þeir voru þó sam­mála um að ein­hvers staðar í kerf­inu þyrfti að skera niður.

Hundruð millj­óna vant­ar

Á Ak­ur­eyri eru auk­in út­gjöld vegna samn­ing­anna 450 millj­ón­ir á þessu ári og ekki ljóst hvernig því verður mætt.

Í Reykja­nes­bæ eru auk­in út­gjöld 580 millj­ón­ir og Kjart­an Már Kjart­ans­son bæj­ar­stjóri seg­ir að bær­inn vilji leita til fjár­málaráðherra til að fá betri hug­mynd um hvernig sé hægt að mæta þess­um aukna kostnaði. Þá seg­ir hann einnig að mót­fram­lagi stjórn­valda í formi niður­fell­ing­ar á kostnaði við að reisa hjúkr­un­ar­heim­ili og umönn­un barna með fjölþætt­an vanda sé mis­skipt milli sveit­ar­fé­laga.

Í Árborg er auk­inn kostnaður vegna kjara­samn­ings­ins 280 millj­ón­ir á þessu ári og ekki ljóst enn hvernig hægt verði að leysa verk­efnið. Í Norðurþingi er auk­inn kostnaður 60-70 millj­ón­ir og þar hef­ur verið kallað eft­ir öll­um und­ir­sviðum til að skoða hvar væri hægt að finna fé til að mæta þess­um aukna kostnaði.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert