Bilun í vefkerfi Ríkisútvarpsins veldur því að sumir notendur sjá tveggja mánaða gamlar fréttir á forsíðu vefsins.
Birgir Þór Harðarson, vefstjóri RÚV, segir að unnið sé að lagfæringu á vefnum. Ekkert bendi til að um netárás sé að ræða.
Truflanir hafa verið á vefnum í morgun. Datt vefurinn út rétt fyrir hádegi. Þegar vefurinn kom aftur upp voru fréttir á forsíðu frá 14. janúar.
Birgir staðfestir að vefurinn hafi verið til vandræða í morgun. Hann segist ekki geta lofað hvenær vefurinn verði eðlilegur að nýju.
Hann bendir þó á að netverjar geti farið inn á lénið nyr.ruv.is – vefsíðan sé í himnalagi sé það notað.