#70. - Fellir mál Ásthildar Lóu ríkisstjórnina?

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 1:32:20
Loaded: 0.00%
Stream Type LIVE
Remaining Time 1:32:20
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
  • default, selected

Ekk­ert kemst á dag­skrá þenn­an frétta­dag­inn annað en af­sögn barna- og mennta­málaráðherra. En hver verður eft­ir­leik­ur máls­ins? Er rík­is­stjórn­in í hættu? Hef­ur orðspor Íslands skaðast á er­lend­um vett­vangi?

Svara við þess­um spurn­ing­um verður leitað á vett­vangi Spurs­mála þenn­an föstu­dag­inn. Til þess að ræða póli­tík­ina í mál­inu mæta þau til leiks, Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins og Snorri Más­son, þingmaður Miðflokks­ins.

Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um má nálg­ast í spil­ar­an­um hér að ofan, á Spotify og YouTu­be, og er hún öll­um aðgengi­leg. 

Lög­menn rýna í stöðuna

Að lok­inni þeirri umræðu eru þeir vænt­an­leg­ir á vett­vang lög­menn­irn­ir Sig­urður G. Guðjóns­son og Árni Helga­son, sem einnig er varaþingmaður.

Þeir ætla að ræða annað stórt mál sem skekið hef­ur ís­lenskt sam­fé­lag síðustu vik­ur og varðar einnig Ásthildi Lóu Þórs­dótt­ur, frá­far­andi ráðherra. Í ljós hef­ur komið að Ari­on banki af­henti henni og eig­in­manni henn­ar fast­eign í Garðabæ árið 2019 langt und­ir markaðsvirði. Hvaða áhrif hafa þær upp­lýs­ing­ar, meðal ann­ars á af­stöðu skatta­yf­ir­valda?

Á Fram­sókn sér viðreisn­ar von?

Í lok þátt­ar mun Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mæta á vett­vang en þann 13. mars skrifaði hann grein þar sem hann kall­ar eft­ir end­ur­reisn Fram­sókn­ar­flokks­ins. Miðstjórn hans mun funda á Ak­ur­eyri um helg­ina og í viðtal­inu mun Guðni upp­lýsa hvað hann telji að þurfi að gera til þess að þessi elsti stjórn­mála­flokk­ur nái vopn­um sín­um að nýju.

Fylg­ist með sneisa­full­um og spenn­andi umræðuþætti hér á mbl.is alla föstu­daga klukk­an 14.

Diljá Mist Einarsdóttir, Snorri Másson, Guðni Ágústsson, Árni Helgason og …
Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir, Snorri Más­son, Guðni Ágústs­son, Árni Helga­son og Sig­urður G. Guðjóns­son eru gest­ir Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í Spurs­mál­um að þessu sinni. Sam­sett mynd/​mbl.is/​María Matth­ías­dótt­ir
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert