Stunguárás á Ingólfstorgi: Tveir fluttir á sjúkrahús

Þrír sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Mynd úr safni.
Þrír sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Mynd úr safni. mbl.is/Ari

Stungu­árás var fram­in á Ing­ólf­s­torgi um klukk­an 23 og í kjöl­farið voru tveir flutt­ir á sjúkra­hús. 

Þetta seg­ir Agnes Eide Krist­ín­ar­dótt­ir, yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, í sam­tali við mbl.is en Vís­ir greindi fyrst frá.

Hún seg­ir að sam­kvæmt fyrstu upp­lýs­ing­um þá sé um stungu­árás að ræða.  Tveir voru flutt­ir á sjúkra­hús en Agnes kveðst ekki geta sagt til um ástand þeirra.

„Að sjálf­sögðu er mikið viðbragð“

Lár­us­ Stein­dór Björns­son­, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ir í sam­tali við mbl.is að þrír sjúkra­bíl­ar hafi verið send­ir á vett­vang.

Agnes seg­ir ekki hvort að ein­hverj­ir hafi verið hand­tekn­ir en að viðbragð lög­reglu sé mikið á vett­vangi. 

„Þetta er í miðborg­inni þar sem er fullt af fólki á ferðinni. Að sjálf­sögðu er mikið viðbragð, það seg­ir sig sjálft,“ seg­ir Agnes. 

Frétt­in hef­ur verið upp­færð. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert