„Þú skreiðst upp í til fimmtán ára stráks“

Ásthildur Lóa sagði af sér í gær.
Ásthildur Lóa sagði af sér í gær. mbl.is/Eyþór

Kon­an sem óskaði eft­ir fundi með for­sæt­is­ráðherra, og hóf þar með at­b­urðarás sem endaði með af­sögn barna- og mennta­málaráðherra, kveður sér hafa ofboðið að Ásthild­ur hafi haft sam­ræði við 15 ára strák.

Enn frem­ur seg­ir hún að for­sæt­is­ráðuneytið hafi full­vissað hana um að trúnaðar yrði gætt.

„Eins og ég sagði við hana þegar hún hringdi í mig: Ég sagði, ástæðan fyr­ir því að ég vil að þú vík­ir sem barna­málaráðherra, þú skreiðst upp í til fimmtán ára stráks og það er nóg fyr­ir mig,“ seg­ir Ólöf Björns­dótt­ir, kon­an sem um ræðir, í viðtali við Rík­is­út­varpið.

Kvaðst ekki vera að bjóða Ásthildi á fund­inn

Ólöf hafði sam­band við for­sæt­is­ráðuneytið og bað Kristrúnu um fund. Þann 11. mars ít­rekaði hún er­indið og óskaði eft­ir stutt­um fundi með Kristrúnu.

„Góðan dag­inn, ég bið um stutt­an fund með Kristrúnu Frosta­dótt­ur, en það varðar Ásthildi Lóu Þórs­dótt­ur, það er í góðu lagi að hún sitji líka fund­inn, ef Kristrún vill það. Ligg­ur á,“ seg­ir í póst­in­um.

Hún tek­ur fram að hún hafi ekki með þessu boðið Ásthildi Lóu á fund­inn held­ur aðeins verið að benda Kristrúnu á það að þegar hún hefði fengið að vita hvert mál­efnið væri þá mætti Kristrún bjóða Ásthildi á fund­inn.

Var full­vissuð um trúnað af for­sæt­is­ráðuneyt­inu

Aðstoðarmaður Kristrún­ar sýndi Ásthildi nafnið á kon­unni, Ólöfu, þann sama dag. Ásthild­ur kvaðst ekki vita hver kon­an væri en hafði engu að síður sam­band við hana 16. mars.

Ólöf seg­ir að Ásthild­ur Lóa hafi talað við sig í 45 mín­út­ur og reynt að segja sér að það sem gerðist milli henn­ar og barns­föður henn­ar hefði verið öðru­vísi en hún héldi.

Ólöf ræddi á eng­um tíma­punkti við Ásthildi Lóu áður en hún hafði sam­band við for­sæt­is­ráðuneytið. Hún kveðst hafa haft sam­band við for­sæt­is­ráðuneytið áður en hún sendi nokkuð til að ganga úr skugga um að trúnaður ríkti um það sem kæmi þar fram.

„Ég vildi ekki senda neitt nema vera viss um að það færi ekki út um borg og bý.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert