Um tíu skjálftar síðastliðinn sólarhring

Flest bend­ir til þess að átt­unda eld­gosið í gos­hrin­unni í …
Flest bend­ir til þess að átt­unda eld­gosið í gos­hrin­unni í Sund­hnúkagígaröðinni sé á næsta leyti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um tíu skjálft­ar hafa mælst í kviku­gang­in­um við Sund­hnúkagígaröðina á síðastliðnum sól­ar­hring.

„Þetta er svipað og hef­ur verið síðustu daga,“ seg­ir Sig­ríður Magnea Óskars­dótt­ir, nátt­úr­vár­sér­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands, í sam­tali við mbl.is.

Sér­fræðing­ar á Veður­stof­unni fylgj­ast með gangi máli. Flest bend­ir til þess að átt­unda eld­gosið í gos­hrin­unni í Sund­hnúkagígaröðinni, sem hófst í des­em­ber 2023, sé á næsta leyti.

Hægt er að fylgj­ast með gangi mála í þrem­ur vef­mynda­vél­um mbl.is á staðnum. Er ein þeirra á Þor­birni en tvær eru staðsett­ar á Húsa­felli, sem er aust­an meg­in við Grinda­vík.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert