Ásthildur Lóa sinnir ekki þingstörfum

Ásthildur Lóa Þórsdóttir mun ekki geta sinnt þingstörfum.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir mun ekki geta sinnt þingstörfum. mbl.is/Ólafur Árdal

Ásthild­ur Lóa Þórs­dótt­ir þingmaður Flokks fólks­ins mun ekki geta sinnt þing­störf­um á næst­unni. Þetta kom fram við upp­haf þing­fund­ar sem hófst kl. 15. 

Eins og kunn­ugt er sagði Ásthild­ur Lóa af sér sem mennta- og barna­málaráðherra eft­ir að greint var frá því í fjöl­miðlum að hún hefði eign­ast barn með 16 ára göml­um ung­lings­pilti þegar hún var 22 ára göm­ul. 

Guðmund­ur Ingi Krist­ins­son tók við ráðherra­stóln­um af Ásthildi Lóu í gær.

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir for­seti Alþing­is gerði grein frá fjar­veru Ásthild­ar Lóu við upp­haf fund­ar. 

1. varamaður Flokks fólks­ins í Suður­kjör­dæmi, Elín Íris Fann­dal, hleyp­ur í skarðið fyr­ir Ásthildi Lóu.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert