Kornax tryggir hveitiinnflutning

Einu hveitiverksmiðju landsins verður lokað á næstunni.
Einu hveitiverksmiðju landsins verður lokað á næstunni. mbl.is/sisi

„Þetta er komið svo langt að það er erfitt að snúa við og ég held að stjórn­völd þurfi að koma að þessu ef það er raun­veru­leg­ur vilji til þess,“ seg­ir Arn­ar Þóris­son for­stjóri Líf­l­ands um um­mæli Hönnu Katrín­ar Friðriks­son at­vinnu­vegaráðherra að það sé mikið áhyggju­efni ef hveitifram­leiðslu verði hætt á Íslandi.

Ráðherr­ann sagðist hafa rík­an vilja til þess að hveitifram­leiðslu yrði fram­haldið því það varðaði þjóðarör­yggi. Hún hvatti Korn­ax til að kæra ákvörðun heil­brigðis­eft­ir­lits­ins um að heim­ila ekki starfs­leyfi á Grund­ar­tanga.

Arn­ar seg­ir ekki ein­falt að snúa við og hann hafi ekki heyrt í ráðuneyt­inu annað en það sem fram kom í fjöl­miðlum um helg­ina.

„Við erum búin að fjár­festa og semja um breyt­ing­ar á inn­flutn­ingi á hveiti eft­ir að hús­næðinu var sagt upp og ekki fékkst leyfi til að byggja nýja verk­smiðju á Grund­ar­tanga. Við erum búin að gera leigu­samn­inga til þriggja ára við fyr­ir­tæki í Dan­mörku, búin að kaupa hveiti sem þar verður malað þannig að þetta er ekki bara að snúa lykl­in­um og kveikja á aft­ur.“

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert