Opnaði sig á þingi sem þolandi kynferðisofbeldis

Ágústa Ágústsdóttir ræddi kynferðisofbeldi í pontu.
Ágústa Ágústsdóttir ræddi kynferðisofbeldi í pontu. Skjáskot af vef Alþingis

Ágústa Ágústs­dótt­ir, varaþingmaður Miðflokks­ins í Norðaust­ur­kjör­dæmi, steig í pontu á Alþingi í dag og lýsti lík­am­legu og kyn­ferðisof­beldi af hálfu maka. Ræðan var und­ir liðnum störf þings­ins. Þar lýs­ir hún upp­lif­un sinni í 14 ára of­beld­is­sam­bandi. 

Í ræðunni ger­ir hún m.a. að því skóna að lög­regla geri lítið úr umkvört­un­um þolenda auk þess sem hún lýs­ir hug­ar­ástandi sínu á meðan hún var í þeim aðstæðum sem hún upp­lifði. Hvatti hún lög­gjaf­ann til þess að gera brag­ar­bót í kyn­ferðisaf­brota­mál­um. 

Laus­ar tenn­ur, ösk­ur og læti 

Ræðan er meðfylgj­andi:  

„Frú for­seti. Fyrsta höggið, fyrsta sjokkið. Laus­ar tenn­ur þegar hann keyr­ir höfuð henn­ar full­um þunga ofan í jörðina meðan tjald­stæðis­gest­ir horfa á en gera ekk­ert. Lögg­an sem sagði: Kæra hann? Já, já, viltu ekki bara sofa á þessu í nótt og koma svo á morg­un? Hún vakn­ar reglu­lega við hann ofan á sér um miðjar næt­ur — brýt­ur alltaf öll mörk — sef­ur á varðbergi því hann brjál­ast ef börn­in skríða upp í. Öskur, læti og ásak­an­ir út af öll­um mögu­leg­um hlut­um þangað til hún er orðin svo þreytt að það verður ein­fald­ara að halda friðinn, spila leik­inn, láta und­an. Hvert á hún ann­ars að fara? Vera meðvirk, verja hann í von um að ein­hvern tím­ann efni hann lof­orðin. Ein­angr­ast. Niður­læg­ing­ar, lyg­ar, niður­brot.“

„Að drepa þig“ 

„Drullaðu þér frá and­lit­inu á mér áður en ég kúg­ast. Ég kúg­ast ef ég horfi á þig. Svo læst hann kúg­ast. Ég elska þig. Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef þú fær­ir frá mér. Hún pakk­ar rétt nauðsyn­leg­ustu föt­um sín­um og barn­anna, skjálf­andi af hræðslu yfir því að hann komi að henni. Hef­ur þú aldrei átt þér drauma? Spyr hún. Jú, að drepa þig. Svo hlær hann.“

Ágústa Ágústsdóttir er þingmaður Miðflokksins.
Ágústa Ágústs­dótt­ir er þingmaður Miðflokks­ins. Ljós­mynd/​Alþingi

Alls ekki flók­in mál 

„Hún er kon­an sem stend­ur hér í pontu Alþing­is í dag. 14 ár af of­beldi. Það er ástæða fyr­ir því að ég á Schä­fer-hund, ég get treyst því að hann verji mig. Það ger­ir kerfið ekki. Rödd heyr­ist: Já, en hvað með kon­ur sem ljúga? Með sömu rök­um get ég sagt: Hey, bönn­um öll­um karl­mönn­um að vinna með börn­um þar sem flest­ir barn­aníðing­ar eru af því kyni. Erum við til í það? Örugg­lega ekki. Mæðuleg rödd heyr­ist: Já, en þetta eru svo flók­in mál. Nei, þau eru nefni­lega alls ekk­ert flók­in. Hætt­um að kyn­gera of­beldi. Of­beldi er bara of­beldi sama hver beit­ir því. Á meðan lög­gjaf­ar­valdið tek­ur sig ekki sam­an í and­lit­inu þá mun þessi far­ald­ur halda áfram að blómstra í skugga þess. Vorkunn gagn­ast þolend­um ekk­ert. Afstaða og aðgerðir gera það. Af­leiðing­ar of­beld­is fylgja þolend­um út lífið. Það eyðilegg­ur líf og það tek­ur líf. Það hef­ur stór keðju­verk­andi áhrif út í sam­fé­lagið okk­ar sem sýk­ir það, veik­ir, kost­ar það lýðheils­una, geðheils­una og send­ir kyn­slóðir áfram veg­inn halt­ar og/​eða brotn­ar.

Heyra mátti í þingsal orðin heyr, heyr! eft­ir að ræðunni lauk. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert