Karl V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn. Segir í tilkynningu frá Karli að ákvörðun þessi helgist af því að skoðanir hans og hugsjónir um sjávarútvegsmál á Íslandi eiga ríkan hljómgrunn í Frjálslynda flokknum.
Karl V. var færður upp í fjórða sæti á lista Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi í prófkjöri sem þar fór fram um síðustu helgi. Var það gert vegna kynjakvóta en hann hafnaði neðar í prófkjörinu. Fyrir síðustu alþingiskosningar skipaði Karl annað sætið á lista Samfylkingarinnar á NV-kjördæmi.
„Viðhorf mín á þessu sviði hafa ekki skipað þann sess innan Samfylkingarinnar sem ég hefði kosið á undanförnum tveimur árum, sem kom vel í ljós í niðurstöðum prófkjörs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir skömmu.
Ein meginástæða þess að ég hóf þátttöku í stjórnmálum er löngun mín til að stuðla að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins sem að mínu mati er með eindæmum ranglátt og felur í sér mikla mismunun. Það hefur ekki síst komið í ljós eftir að efnahagskreppan skall á Íslandi í október á síðasta ári en ég er þeirrar skoðunar að fyrirkomulag þessa kerfis eigi stóran þátt í þeim vanda sem þjóðin glímir nú við. Því verður eitt mikilvægasta verkefni í endurreisn landsins að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu á þann veg að arður þessarar dýrmætustu náttúruauðlindar landsins komi þjóðinni allri til góða. og skapi um leið fleiri atvinnutækifæri.
Frjálslyndi flokkurinn hefur ávallt sett þessi mál í öndvegi. Ég hef því ákveðið að ganga til liðs við flokkinn og hlakka ég til að eiga gott samstarf við félaga hans.
Á þessum tímamótum vil ég nota tækifærið til að þakka kærum vinum mínum í Samfylkingunni samstarfið á undanförnum árum og óska þeim alls hins besta," að því er segir í yfirlýsingu frá Karli V. Matthíassyni.