Rödd Akureyrar þarf að heyrast

Málefni heilsugæslunnar eru ofarlega á baugi í kosningarbaráttu Sjálfstæðismanna á Akureyri og þar þarf að auka fjárframlög við fyrsta tækifæri að sögn Gunnars Gíslasonar, oddvita flokksins. Hann segir stefnumál flokkanna oft svipuð en bendir einnig á að rödd Akureyrar þurfi að fá meira vægi.

mbl.is mun fram að kosningum birta stutt viðtöl við oddvita framboða í nokkrum af stærstu sveitarfélögunum. Spurningarnar eru einfaldar og fáar: Hvað er brýnt að ganga í strax að kosningum loknum – og um hvað snúast kosningarnar að þessu sinni? Þá fengu frambjóðendur að velja sér stað sem þeir útskýra af hverju varð fyrir valinu. 

Gunnar hitti okkur við smábátahöfnina við Hof.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert