Páll Magnússon, Ásmundur Friðriksson og Vilhjálmur Árnason verða efstu þrír menn á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður, sem lenti í fimmta sæti í prófkjöri flokksins, færist upp í fjórða sætið, en Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem varð í fjórða sæti hafði gefið það út að hún hygðist yfirgefa stjórnmálin í ljósi slæmrar útkomu í prófkjörinu.
Talsverðar umræður spruttu upp eftir prófkjör flokksins í Suðurkjördæmi og Suðvesturkjördæmi, en í Suðurkjördæmi voru þrír karlmenn efstir á lista og í Suðvesturkjördæmi voru fjórir efstu karlmenn.
Konur í Sjálfstæðisflokknum lýstu margar yfir óánægju með niðurstöðuna. Helga Dögg Björgvinsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, sagði í viðtali við mbl.is að henni litist illa á niðurstöðuna og í ályktun frá félaginu kom fram að jafna þyrfti kynjahlutföllin á listanum. Þá sendi Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, frá sér ályktun um að jafna ætti kynjahlutföll á listanum.
Í dag er Sjálfstæðisflokkurinn með fjóra þingmenn í kjördæminu. Ragnheiður Elín leiddi listann, Unnur Brá var í öðru sæti, Ásmundur Friðriksson er þriðji þingmaður og Vilhjálmur Árnason er fjórði þingmaður.
Listinn í heild sinni er eftirfarandi:
1. sæti - Páll Magnússon fjölmiðlamaður
2. sæti - Ásmundur Friðriksson alþingismaður
3. sæti - Vilhjálmur Árnason alþingismaður
4. sæti - Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður
5. sæti - Kristín Traustadóttir endurskoðandi
6. sæti - Hólmfríður Erna Kjartansdóttir, skrifstofustörf
7. sæti - Ísak Erni Kristinsson deildarstjóri
8. sæti - Brynjólfur Magnússon lögfræðingur
9. sæti - Lovísa Rósa Bjarnadóttir framkvæmdastjóri
10. sæti - Jarl Sigurgeirsson tónlistarkennari
11. sæti - Laufey Sif Lárusdóttir umhverfisskipulagsfræðingur
12. sæti - Jón Bjarnason bóndi
13. sæti - Hjördís Guðrún Brynjarsdóttir sjúkraþjálfari
14. sæti - Bjarki V. Guðnason sjúkraflutningamaður
15. sæti - Helga Þórey Rúnarsdóttir leikskólakennari
16. sæti - Þorkell Ingi Sigurðsson framhaldsskólanemi
17. sæti - Ragnheiður Perla Hjaltadóttir hjúkrunarnemi
18. sæti - Alda Agnes Gylfadóttir framkvæmdastjóri
19. sæti - Sandra Ísleifsdóttir húsmóðir
20. sæti - Geir Jón Þórisson, fyrrverandi lögreglumaður