Fundar fyrst með Bjarna

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands ásamt eiginkonu sinni, Elizu Reid.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands ásamt eiginkonu sinni, Elizu Reid. mbl.is/Júlíus

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson mun eiga fundi á morgun með forystumönnum stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á nýkjörnu Alþingi, líkt og fram kom í frétt mbl.is hér fyrr í dag.

Frétt mbl.is: Forsætisráðherra biðst lausnar

Fundur forseta og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, verður klukkan 10.

Fundur forseta og Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, verður klukkan 11.

Fundur forseta og Birgittu Jónsdóttur, Smára McCarthy og Einars Aðalsteins Brynjólfssonar frá Pírötum verður klukkan 12.

Fundur forseta og Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins, verður klukkan 13.

Fundur forseta og Benedikts Jóhannessonar, formanns Viðreisnar, verður klukkan 14.

Fundur forseta og Óttars Proppé, formanns Bjartrar framtíðar, verður klukkan 15.

Fundur forseta og Oddnýjar Harðardóttur, formanns Samfylkingarinnar, verður klukkan 16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert