Leggur til D, V og B

Hjörleifur Guttormsson.
Hjörleifur Guttormsson.
Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur og fyrrverandi ráðherra, leggur til að Vinstri grænir, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn myndi ríkisstjórn. Þetta kemur fram í aðsendri grein sem hann ritar í Morgunblaðið í dag.
Hann minnir á að árið 1978 hafi tekið tvo mánuði að mynda ríkisstjórn. Ríkisstjórn sem þá var loks mynduð með drjúgan þingmeirihluta að baki.
„Sú stjórn missti fótanna að 13 mánuðum liðnum vegna hallarbyltingar í Alþýðuflokknum. Við tóku kosningar á aðventu 1979 og í kjölfar þeirra þrátefli í meira en tvo mánuði. Stjórnin sem þá var loks mynduð hafði afar nauman þingstyrk en starfaði þó á fjórða ár.
Í hvorugu tilvikinu var um hreinar línur að ræða milli hægri og vinstri á Alþingi, og staðan var að því leyti ekki ólík því sem nú er.
Allt tal nú um myndun fimm flokka ríkisstjórnar frá miðju til vinstri, m.a. með þátttöku Viðreisnar og Pírata, er hugmyndalega út í hött. Viðreisn er frjálshyggjuframboð til hægri við Sjálfstæðisflokkinn og Píratar eru markaðssinnuð hreyfing sem leitar einfaldra lausna í netheimum.
Það er ráðgáta hvernig flokki eins og VG kom til hugar að reyna að klastra saman ríkisstjórn úr slíkum efnivið. Afar óljós er líka staða og hugmyndir Bjartrar framtíðar, sem kosið hefur að spyrða sig saman við Viðreisn, fyrst og fremst að því er virðist vegna hugmynda beggja um ESB-aðild sem lausnarorð,“ skrifar Hjörleifur.
Hann segir að kostum um myndun meirihlutastjórnar fari fækkandi, fyrst og fremst vegna hiks VG við að láta reyna á stjórnarmyndun með Sjálfstæðisflokki.
„Þar er formaður VG að því er virðist fangi eigin yfirlýsinga af þeim gamla skóla að allt sé betra en íhaldið. Augljóst er að háspenntar hugmyndir VG um skattahækkanir eru ekki líklegar til að fá byr í slíku samstarfi, en einhverjar breytingar á skattkerfinu og hert viðurlög við undanskotum ættu ekki að vera útlokaðar fyrir fram og þá með Framsóknarflokkinn sem líklegan þriðja aðila. Um ýmislegt annað ætti að geta náðst góð samstaða milli þessara þriggja flokka, þar á meðal að binda enda á óráðshjal um aðild Íslands að Evrópusambandinu um fyrirsjáanlega framtíð.

Fyrir Sjálfstæðisflokkinn væri hollt að nálgast VG á breiðu sviði umhverfismála, m.a. að festa í stjórnarskrá þjóðareign á náttúruauðlindum og ná fram öðrum breytingum sem sæmileg samstaða hafði tekist um sl. sumar. Kostur við hugsanlegt samstarf þessara þriggja flokka er jafnframt að þeir hafa góðan stuðning og þingstyrk víðast hvar á landinu. Látum því á þetta reyna sem fyrst,“ skrifar Hjörleifur sem var iðnaðarráðherra 1978–1979 og 1980–1983.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert