Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði mikilvægt að þverpólitísk sátt ríkti um að brotaþolum kynferðisbrota yrði sinnt betur í stjórnkerfinu. Hún var spurð í Kastljósinu á Rúv í kvöld um gagnrýni Vinstri grænna á samskipti Bjarna Benediktssonar og Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra varðandi uppreist æru. Auk Katrínar voru Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra gestir Kastljóss.
Katrín sagði að óskað hefði verið eftir öllum upplýsingum um allt þetta mál í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. „Við tókum þetta mál og settum upp á yfirborðið í gegnum þann farveg. Hins vegar sagði ég líka í kringum þá merkilegu vakningu sem varð í kringum brotaþola í þessu samfélagi að við vinnum áfram með málið,“ sagði Katrín.
Hún sagði jafnframt að mikilvægast væri að skapa þverpólitíska samstöðu á Alþingi um að gerð yrði bragarbót á því hvernig málum brotaþola kynferðisbrota væri sinnt, fylgt eftir og réttarstaða þeirra væri tryggð. Hún vísaði til yfirgripsmikils kafla um þetta mál í stjórnarsáttmálanum. „Við höfum í hyggju að veita aukna fjármuni í þessi mál og það þarf að tryggja að þessi vitundarvakning skili sér í varanlegri breytingu.“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, tók undir með Katrínu og sagði að málið hefði verið skoðað og rætt, meðal annars inni á nefndasviði Alþingis. „Það sem snýr að stjórnsýslunni hefur fengið skoðun. Ég veit ekki til þess að neitt standi út af borðinu með það,“ sagði Bjarni. Hann benti einnig á stjórnarsáttmálann sem bæri þess merki að stjórnmálamenn hefðu hlustað á raddir samfélagsins um þennan málaflokk.